
Nýsköpunar- og þekkingarsetur
Þar sem hugmyndir verða að veruleika!
Arctell Sandvík er nýsköpunar- og þekkingarsetur að Neshaga 16 í Reykjavík. Hér mætast frumkvöðlar, vísindamenn, fjárfestar, samtök og fyrirtæki til að vinna, miðla þekkingu og skapa ný tækifæri.
Sandvík er annað nýsköpunar- og þekkingarsetur Arctell, en það fyrsta var opnað í Kaupmannahöfn í ágúst 2026.
Markmið Arctell er að tengja saman frumkvöðla, vísindamenn, þekkingu heimafólks, fjármagn og alþjóðleg tengslanet, efla alþjóðlegt samstarf og styðja við uppbyggingu fyrirtækja sem geta vaxið á alþjóðlegum mörkuðum. Sérstök áhersla er lögð á tækifæri til nýsköpunar og fjárfestinga á norðurslóðum.
-
01
Rétta umhverfið til að vaxa
Aðild og aðstaðaAð byggja upp fyrirtæki krefst meira en góðrar vinnuaðstöðu. Í Sandvík mætast frumkvöðlar og fólk með reynslu af nýsköpun, fyrirtækjarekstri og fjárfestingum. Hér er fagleg vinnu- og fundaraðstaða, en ekki síður vettvangur til að mynda verðmæt tengsl, miðla þekkingu og koma verkefnum á næsta stig.
-
02
Samfélag frumkvöðla í Reykjavík
Viðburðir og samfélagMikilvæg samtöl eiga sér oft stað utan fundarherbergisins. Í Sandvík er samfélag þar sem frumkvöðlar, vísindamenn, fjárfestar, fulltrúar samtaka og fólk úr atvinnulífinu hittast, miðla þekkingu og læra hvert af öðru. Með viðburðum, samtölum og samstarfi sköpum við lifandi vettvang þar ný tengsl myndast og hugmyndir og samstarfsverkefni verða til.
-
03
Alþjóðleg tengsl og samstarf
Um SandvíkArctell starfrækir nýsköpunar- og þekkingarsetur í Reykjavík og Kaupmannahöfn og áformar frekari uppbyggingu, meðal annars á Ísafirði og í Nuuk á Grænlandi.
Með starfseminni tengir Arctell saman frumkvöðla, vísindamenn, fjárfesta, samtök og fyrirtæki þvert á landamæri, eflir þekkingarmiðlun og alþjóðlegt samstarf og skapa ný tækifæri til nýsköpunar og fyrirtækjauppbyggingar.
Næst á dagskrá
Í Sandvík er vettvangur fyrir samtöl við frumkvöðla, fjárfesta, fulltrúa samtaka og fólk úr atvinnulífinu sem hefur reynslu af því að stofna fyrirtæki, sækja á erlenda markaði, fjárfesta, þróa nýjar lausnir og efla samstarf. Kynntu þér næstu viðburði og taktu þátt í samfélaginu.
Nýir viðburðir verða kynntir hér fljótlega.