
Um Sandvík
Byggt á reynslu af alþjóðlegri fyrirtækjauppbyggingu
Arctell Sandvík er nýsköpunar- og þekkingarsetur að Neshaga 16 í Reykjavík. Hjónin Guðmundur Fertram Sigurjónsson og Fanney Kr. Hermannsdóttir opnuðu setrið ásamt samstarfsfólki 7. október 2026 til að skapa vettfang fyrir nýsköpun, þekkingarmiðlun, alþjóðlegt samstarf og uppbyggingu fyrirtækja og samtaka.
Guðmundur Fertram Sigurjónsson er stofnandi Kerecis og átti hugmyndina að því að nýta fiskroð til sárameðferðar og vefjaviðgerða, sem varð grunnurinn að starfsemi fyrirtækisins. Ásamt öflugum hópi samstarfsfólks þróaði hann tæknina og leiddi uppbyggingu Kerecis frá litlu sprotafyrirtæki á Ísafirði á Vestfjörðum í alþjóðlegt heilbrigðistæknifyrirtæki. Saga Kerecis sýnir hvernig nýsköpun sem á rætur í litlu samfélagi á norðurslóðum getur orðið grundvöllur fyrirtækis á heimsmælikvarða. Árið 2023 varð Kerecis fyrsti íslenski Einhyrningurinn þegar danska fyrirtækið Coloplast keypti Kerecis fyrir 1,3 milljarða Bandaríkjadala. Reynsla Guðmundar Fertrams nær þó langt út fyrir Kerecis. Hann er verkfræðingur, frumkvöðull og fjárfestir með yfir þriggja áratuga reynslu af nýsköpun, tækniþróun og stofnun og uppbyggingu fyrirtækja á sviði heilbrigðistækni, líftækni, fjármálatækni og endurnýjanlegrar orku. Hann hefur stofnað og tekið þátt í að stofna fyrirtæki í Danmörku, Suðaustur-Asíu og á Íslandi og hefur sem frumkvöðull, verkfræðingur og stjórnandi fundið upp, þróað og komið fjölmörgum vörum og tæknilausnum á markað. Hann er skráður uppfinningamaður á hundruðum einkaleyfa og einkaleyfisumsókna.
Að baki Sandvík stendur Arctell, nýsköpunar- og fjárfestingafélag sem Guðmundur Fertram, Fanney og samstarfsfólk standa að.
Í Sandvík er hugmyndin að nýta þá reynslu og byggja upp öflugt umhverfi fyrir fólk sem vill þróa hugmyndir, koma verkefnum á legg og sækja á nýja markaði.