
Viðburðir og samfélag
Samtöl sem kveikja nýjar hugmyndir
Sandvík er lifandi samkomustaður fyrir frumkvöðla, vísindamenn, fjárfesta, samtök og fólk úr atvinnulífinu sem hefur áhuga á nýsköpun, samstarfi og nýjum tækifærum.
Viðburðirnir fjalla um margskonar málefni s.s. leiðina frá hugmynd að fyrirtæki, reynslu frumkvöðla, fjárfestingar, vísindi, alþjóðavöxt og þróun samfélaga á norðurslóðum. Markmiðið er að þátttakendur fari heim með nýja þekkingu og ný tengsl.
Næstu viðburðir
Nýir viðburðir verða kynntir hér fljótlega.
Fundar- og viðburðarými
Í Sandvík er fjölbreytt aðstaða fyrir fundi, kynningar, fyrirlestra, vinnustofur, vörukynningar og aðra viðburði. Hægt er að óska eftir fundarherbergjum eða stærri rýmum eftir stærð hóps, tilgangi og framboði. Aðstaðan stendur einnig til boða aðilum utan samfélagsins samkvæmt gjaldskrá.
Sumar aðildarleiðir fela í sér ákveðinn fjölda klukkustunda í fundarherbergjum og aðrar veita hagstæðari kjör. Hafðu samband til að fá upplýsingar um rými, tæknibúnað og verð.