
Saga Sandvíkur
Á slóðum íslenskrar atvinnusögu
Nafnið Sandvík á rætur í sögu Vesturbæjar Reykjavíkur. Þar sem Melar og Hagar standa nú var áður býli sem nefndist Sandvík en fékk síðar nafnið Hagi. Sandvíkurvegur lá um svæðið og bar það nafn fram á miðja síðustu öld.
Sandvík og Hagi tengdust á sínum tíma nokkrum af athafnamönnum landsins. Þar á meðal var Magnús Th. S. Blöndahl (1861–1932), brautryðjandi í byggingariðnaði, iðnframleiðslu og sjávarútvegi m.a. á Vestfjörðum. Hann átti meðal annars stóran þátt í stofnun og uppbyggingu trésmiðjunnar Völundar, einnar af merkustu verksmiðjum íslenskrar iðnvæðingarkomi.
Magnús eignaðist Haga um eða upp úr 1920. Árið 1924 hóf hann þar uppbyggingu umfangsmikillar fiskverkunarstöðvar með tæknivæddu fiskþurrkunarhúsi og fiskreitum. Starfsemin var meðal þeirra stærri í landinu og í Haga unnu að jafnaði um 100 manns árið 1930.
Nafnið Arctell Sandvík vísar því til staðar sem tengist frumkvæði, nýrri tækni og uppbyggingu atvinnulífs á Íslandi. Hér fá þær hugmyndir nýtt hlutverk: að skapa aðstæður fyrir fólk sem vill móta fyrirtæki og atvinnulíf framtíðarinnar.