
Aðild og aðstaða
Rými til að vinna. Samfélag til að vaxa.
Arctell Sandvík býður sveigjanlega vinnuaðstöðu fyrir einstaklinga, samtök og fyrirtæki, allt frá samfélagsaðild og aðgangi að sameiginlegum vinnurýmum, til fastra skrifborða og fullbúinna einkaskrifstofa. Hér er hægt að finna aðstöðu sem hentar í dag og þróast með þörfum fyrirtækisins á morgun.
Sandvík sameinar faglega aðstöðu, þjónustu og vettvang til að mynda verðmæt tengsl.
-
1. hæð
Setustofa og samfélagsrými fyrir óformlega fundi, samtöl og viðburði.
-
2. hæð
Samfélagsrými, rólegri vinnurými og einkaskrifstofur.
-
3. hæð
Rólegri vinnurými og einkaskrifstofur.
Aðild fyrir einstaklinga
Hvort sem þú vilt vera hluti af samfélaginu, vinna hér einstaka daga eða hafa fasta starfsstöð geturðu valið aðild eftir þínum þörfum.
-
01
Community
Community aðild með aðgangi að setustofu á fyrstu hæð í allt að 3 klst. á dag. Ekki reglulegur aðgangur að vinnurýmum á 2. hæð og 3. hæð.
-
02
Flex 5
Community aðild + Sameiginlegt vinnurými á 2. hæð og 3. hæð í 5 almanaksdaga á mánuði.
-
03
Flex 10
Community aðild + Sameiginlegt vinnurými á 2. hæð og 3. hæð í 10 almanaksdaga á mánuði.
-
04
Ótakmarkaður aðgangur að lausum borðum
Community aðild + Ótakmarkaður aðgangur að sameiginlegu vinnurými á 2. hæð og 3. hæð á opnunartíma á lausum skrifborðum.
-
05
Ótakmarkaður aðgangur að föstum borðum
Community aðila + Ótakmarkaður aðgangur að sameiginlegu vinnurými á 2. hæð og 3. hæð á opnunartíma á föstuskrifborðir.
-
06
Einkaskrifstofur
Sjá fyrir neðan
Community hentar þeim sem vilja hitta aðra, sækja samfélagsviðburði og vinna stuttlega í setustofunni. Flex-leiðir henta þeim sem þurfa skrifstofuaðstöðu hluta mánaðarins. Ótakmarkaður aðgangur að lausum eða föstum borðum hentar þeim sem vilja hafa Sandvík sem reglulegan vinnustað.
Aðild fyrir fyrirtæki, samtök og teymi
Fyrirtæki, samtök og teymi geta fengið faglega starfsstöð án þess að skuldbinda sig strax til að leigja eigin skrifstofu. Teymis-aðild er ætluð sprotafyrirtækjum, ráðgjafateymum, samtökum og öðrum fyrirtækjum sem vilja vinna í sameiginlegu rými og nýta þjónustu og samfélag Sandvíkur.
-
01
Teymisaðila – Laus borð
Community aðild + fyrir allt að 3 nafngreinda starfsmenn með aðgang að þeim skrifborðum sem eru laus.
-
02
Teymisaðild – Föst borð
Community aðild + fyrir allt að 3 nafngreinda starfsmenn, hver með sitt frátekna skrifborð.
-
03
Viðbótaraðild
Möguleiki á að bæta við nafngreindum starfsmönnum þegar teymið stækkar.
Samkvæmt þjónustuhandbók fylgja báðum teymisleiðum allt að fimm klukkustundir á mánuði í fundarherbergjum. Nánari reglur um bókanir, viðbótarþjónustu og framboð verða staðfestar við samningsgerð.
Einkaskrifstofur
Sandvík býður fullbúnar einkaskrifstofur fyrir einstaklinga, lítil teymi og fyrirtæki sem vilja fá eigin rými og njóta um leið þjónustu og tengslanets setursins. Skrifstofurnar eru af mismunandi stærð og geta hentað allt frá einum starfsmanni upp í tíu manna teymi.
Aðstaðan er samkvæmt þjónustuhandbókinni meðal annars með húsgögnum, nettengingu, rafmagni, þrifum, aðgangi að sameiginlegum rýmum og þjónustu við móttöku. Framboð, þjónusta og aðgangsheimildir fara eftir samningi. Community aðild fylgir alltaf.
Hafðu samband vegna lausra rýma, skoðunar og tilboðs.
| Stærðarflokkur | Viðmiðunarstærð | Fjöldi |
|---|---|---|
| Venjuleg stærð | 7–8,6 m² | 1 |
| Venjule stærð+ | 9,5–9,6 m² | 2 |
| Miðstærð | 11,7 m² | 2 |
| Miðstærð+ | 16,5–18,0 m² | 3 |
| Stórt | 19,4–21,9 m² | 4 |
| Teymi | 24,6–27,7 m² | 4 |
| Teymi+ | 52,3 m² | allt að 10 |
Aðstaða og þjónusta
Í Sandvík er áhersla á að það sé einfalt að mæta til vinnu og einbeita sér að verkefnunum. Aðildarleiðir og skrifstofusamningar geta meðal annars falið í sér eftirfarandi þjónustu, eftir því hvað er valið:
- Háhraða-Wi-Fi, kaffi og te og aðgang að sameiginlegum rýmum.
- Fundarherbergi og viðburðarrými sem má bóka samkvæmt gjaldskrá og aðildarskilmálum.
- Móttöku og aðstöðu til að taka á móti gestum og samstarfsaðilum.
- Hjólastæði, sturtuaðstöðu og gjaldfrjáls bílastæði á lóð samkvæmt framboði.
- Fyrirtækisheimilisfang og póstmóttöku, eftir aðildarleið og gjaldskrá.
- Samfélagsviðburði, fræðslu og tækifæri til að kynnast öðrum meðlimum.
Fyrirtækisheimilisfang og póstþjónusta eru í boði fyrir aðildarleiðir aðrar en Community; þjónustan er innifalin í einkaskrifstofuleigu en annars er greitt sérstaklega fyrir þá þjónustu. Endanlegt fyrirkomulag verður staðfest við umsókn.